Samfylking boðar Samstöðu um endurreisn - Var hún ekki hafin.

Samstaða um endurreisn
Þingflokkur Samfylkingarinnar lagði land undir fót í vikunni og hélt í fundaferð um allt land, þá þriðju á sjö mánuðum. Fundir þessir eru mjög mikilvægir þingflokki okkar og ráðherrum því á þeim gefst tækifæri til þess að eiga milliliðalaust samtal við þjóðina og heyra frá fyrstu hendi á hverju brennur helst.

Þetta er tekið úr tilkynningu sem er sent á flokksbundna Samfylkingarmenn. Semsagt núna hálfu öðru ári eftir hrun þarf að kanna frá fyrstu hendi hjá þjóðinni hvað er mikilvægast.  Þessi norræna velferðastjórn er "VANHÆF RÍKISTJÓRN" svona lesendur segið þetta með mér þessi ríkistjórn er "VANHÆF RÍKISTJÓRN". Megin markmið hennar er að gera sem minnst fyrir þjóð sína og hampa sér sem mest í fjölmiðlum fyrir það hversu lítið þau hafa gert.Félagsmálaráðherra sem trúði því á fundi með Samfylkingarfólki  fyrir síðustu kosningar að aðeins hans flokkur hefði svörin við vanda þjóðarinnar. Hvað svör hefur hans flokkur. Þess má sjá merki að allar aðgerðir þessarar stjórnar eru skammarlega. Af hverju segir þessi stjórn ekki rétt frá “Stjórnin ætlar ekki að leiðrétta neitt fyrir heimilin. Hún hefur ekki hugmynd um hvernig hún ætlar að endurreisa landið. Nú eru fundaboðin frá Samfylkingunni um að þau þurfi, núna einu og hálfu ári eftir hrun að finna út hvað brennur á fólki. Ef stjórnin veit ekki hvað er að þá á sú ríkistjórn á að fara frá. Fleiri fyrirtæki en áður sjá fram á að þurfa að segja upp fólki. Ríkið mun þurfa að segja upp fólki. Atvinnuleysi stefnir enn hærra, síðasta ár var met ár í fólksflótta frá landinu. Eina von fólks í að fá leiðréttingu og afskriftir á skuldum sínum eins og fjármálafyrirtækin fengu er að Hæstiréttur komist að sömu niðurstöður og Héraðsdómur. Sem sagt að það eru dómarar þessa lands eins og Jón Steinar Gunnlaugsson sem eiga að koma með lausnina fyrir þessa ríkistjórn. Þvílíkt vanhæfi sem þessi ríkistjórn hefur sýnt af sér. Síðan kom Árni Páll Árnason fram í fréttum og talaði um að þetta væri vont fyrir fjármálafyrirtækin. En það er allt í lagi með almenning í þessu landi. Fjármálakerfið er endurreist á kostnað almennings þetta voru orð sem komu fram á Bylgjunni. Þau eru sönn á meðan endurreisa  á fjármálafyrirtækjum stendur sem hæst og við heyrum af milljarða afskriftum hjá fyrirtækjum. Má almenningur missa húsin, bílanna sína. Nú ef þeim líkar ekki aðgerðir Ríkisstjórnarinnar þá geta þau alltaf flutt úr landi. Ég heyrði viðtal fyrir þó nokkru síðan við Árna Pál Árnason þar sem hann varð spurðum um stöðu skuldara gagnvart bönkum og ekki fengju allir sömu fyrirgreiðslur. (í fyrsta lagi að detta það að huga að láta það vera undir lánadrottnum komið hversu mikið þeir afskrifa hjá skuldurum er fásinna). En þá svaraði hanna að það væri skynsamlegra að koma með lög sem myndi styrkja skuldar gagnvart lánafyrirtækjum. Þetta er það aumingjalegasta svar sem ég hef heyrt. Tökum þetta samanFjármálafyrirtækin  ráða hvað þeir afskrifa og leið Árna er að setja lög sem auka rétt skuldara. En það að styrkja skuldar breytir ekki þeirri staðreynd að það er alltaf undir fjármálafyrirtækjum komið hversu mikið þau afskrifa. Þessi ríkistjórn ætti að fara í stuttan kúrs hjá þeim mæta manni Ólafi Ísleifssyni hann getur frætt ykkur um heim fjármálanna. Það þarf breytingar í þessu landi ég mæli með að fólk byrji að mæta á Laugardögum kl 3 á Austurvöll og mótmæla það er alveg komin tími til að fólk hrópi "VANHÆF RÍKISTJÓRN”.

 


Var ekki hægt að fá neinn annan í djobbið - Er allt orðið betra.

Þá er það staðfest að Friðrik Sophusson, fyrrverandi fjármálaráðherra og forstjóri Landsvirkjunar, er nýr stjórnaformaður. Eftir að hætt var við ráðningu Jóns Sigurðssonar sem stjórnarformanns. Er bara fyrirverandi stjórnmálamenn í pottinum. Eru þeir svona fjandi hæfir að það er ekki til í dæminu að ráða annan í starfið. Af fréttum undanfarna daga finnst mér ég vera í gölluðu Matador spili það er sama hvað er gert það eru ákveðnir aðilar sem eiga bestu göturnar og ákveðnir vinir fá helstu stöðurnar. Mér finnst almenningur alltaf draga miðann "þú ferð í skuldafangelsi". Hvar er þetta nýja Ísland sem var verið að berjast fyrir á síðasta ári. Er almenningur svona andskoti sáttur við stöðuna í landinu. Hefur bara allt breyst til batnaðar. Ég auglýsi eftir þessu nýja Íslandi. 

 Ekkert breytist hér nema að við losum okkur við þetta flokksræði sem er í landinu. Ég skora á þjóðina að taka upp þráðinn frá því í fyrra og losa okkur við þessa vanhæfu ríkistjórn. Vegna þess að hún er vanhæf á öllum sviðum. Hvort sem það er að koma með skjaldborgina eða til að taka á þessum efnahagsvanda eða að leysa Icesave vandan.  Áfram Íslendingar mæta á Austurvöll og mótmæla þessari ríkistjórn.


Hugbúnaðariðnaður og framtíðin

Þar sem það liggur nú fyrir að stjórnvöld ætla að endurgreiða hluta af þróunarkostnaði fyrirtækja, þá vil ég vekja athygli á nokkrum þáttum . Endurgreiðsla á rannsóknarkostnaði, hefur verið mikið hagsmunamál margra fyrirtækja. Það að ekki hefur verið mögulegt að fá hluta af rannsóknar og þróunarkostnaði hefur dregið úr fyrirtækjum t.d  í hugbúnaðariðnaði. Með þessu frumvarpi er lagður grunnur  sem getur orðið hvati að því að skapa fleiri störf  t.d  í hátækniiðnaði á Íslandi.  Þó að þetta frumvarp verði samþykkt þá eru nauðsynlegt að finna leið til þess að auka líka rannsóknarstyrki. Því ekki framboð á fjármagni til rannsókna er ekki mikið ef við miðum við hlutfall af þjóðarframleiðslu.  Ef skoðaður er samanburður  við hin Norðurlöndin þá vantar mikið upp á að íslenskur hugbúnaðariðnaður nái Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi hvað varðar samkeppnishæfni miða við stuðning stjórnvalda og þess hlutfalls sem ráðstafað er í rannsóknarstyrki. Hvort sem við skoðum hlutfall af heildarútflutningi eða til hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu eða almennan stuðning stjórnvalda við hátækniiðnað. Ef vægi hátækni í útflutningi er skoðað, þá kemur fram að Íslands er með 6 - 7% á móti yfir 20% hjá bæði Svíþjóð og Finnlandi. Enda hafa þessi lönd náð miklum árangri í að skapa hátækni og rannsóknarstörf.   þegar stjórnvöldum var gerð grein fyrir möguleikum hátækniiðnaðar á  Iðnþingi, þann 18. mars 2005. Kom fram í þriðju stoðinni sem voru tillögur til stjórnvalda á þeim tíma, að það mætti skapa með réttum stuðning og aðgerðum stjórnvalda á milli 2-3000 störf miðað við forsendur um aukningu á útflutningi hugbúnaðariðnaðar.  Nú þegar sína tölur að heildarútflutningstölur  á hugbúnaðarþjónustu fyrir árin 2006 og 2007 að meðaltali um 6 milljarðar króna á ári. En í hugbúnaðariðnaði eins og mörgum iðngreinum þá þarf aukningu á rannsóknum og þróunarvinnu. Það er tenging á milli þess sem sett er í þá vinnu og vöxt greinarinnar. Sem dæmi þá var árið 2006 yfir 80.000 manns að vinna við rannsóknir og þróun í þýska bílaiðnaðinum. Enginn efast um gæði bifreiða sem eru framleiddar í þýskalandi af 8 bestu bílamerkjum í heiminum þá eru 5 þeirra þýsk. Þessi aðgerð stjórnvalda nú er gott skref fram á við en það sem skiptir mestu máli er að þessi ríkistjórn framkvæmi stefnumótun um hvernig best er að aðstoða aðrar atvinnugreinar eins hugbúnaðariðnaðinn. Þessi iðnaður hefur vaxið töluvert án þess að fá mikla aðstoð frá yfirvöldum en með smá meiri hjálp heldur en þetta frumvarp veit ég að hugbúnaðariðnaðurinn mun vaxa hratt á komandi árum.   Höfundur skrifaði meistararitgerð um samkeppnishæfni Íslenska Hugbúnaðariðnaðarins.

Ríkistjórinn og úrræði fyrir heimilin.

Úrræðin sem Árni Páll Árnason kynnti um greiðslujöfnuð er máttlausasta aðgerð sem nokkur stjórnmálamaður hefur gert. Þessi sami ráðherra hrósað sínum flokki á fundi Samfylkingarfólks síðasta haust fyrir að vera eini flokkurinn með lausnir. Þvílíkar lausnir sem eru fyrir almenning í landinu. Úrræði ríkistjórnarinnar er að láta bankann sjá um úrræðin. Jöfnuður jafnaðarmannaflokks Íslands er að tryggja það að bankarnir fá sitt og fólki sé mismunað eftir því hjá hvaða banka það er í viðskiptum, eða eftir því hvaða fjármögnunarfyrirtæki fjármagnaði bílalánið. Það er sem sagt undir Glitni, Arion og Landsbanka hvernig hver og einn fær úrlausn sinna mála. Það var fróðlegt sem Sturla Jónsson sagði þegar hann kom hér til landsins í haust að það stæði í samningum við AGS að ekki bæri að afskrifa lán einstaklinga. Sem sagt það er undir AGS- Glitni- Arion- Landsbanka hvort eitthvað sé gert fyrir fjölskyldur í landinu. Það er ekki komið undir þeirri ríkistjórn sem ég og aðrir kusu í seinustu kosningum. Nú þarf þjóðin að fá þetta á hreint með alsherjarmótælum. Það gengur ekki að þjóðin eigi að bera allar byrgðar af hruninu og auk þess að taka á sig skattahækkanir til að hægt sé að standa við Icesave samkomulagið. Þjóðin þarf að sýna samstöðu og mótmæla þessu óréttlæti.  Samfylkingin er ekki að vinna að því að bæta haga borganna.  Ef þessi ríkistjórn heldur áfram á sömu braut og kemur ekkert til móts við almenning með afgerandi hætti. Þá á þessi ríkistjórn að taka pokann sinn og þá á almenningur að koma þessari ríkistjórn frá völdum. Þjóðin hefur áður komið ríkistjórn frá og getur gert það aftur.  Nú er það undir þjóðinni komið að krefjast umbóta... 

 


Atkvæðagreiðsla á þingi

Það er merkilegt að sjá alla þingmenn Sjálfstæðisflokksins greiða eins atvæði í þinginu. Tvöföld þjóðaratkvæðagreiðsla. Það virðist ekki vera neinn þingmaður það sem hefur aðra skoðun heldur en það sem flokkslínan leggur. Ég tek ofan fyrir Guðmundi Steingrímssyni fyrir að sína þor og vera samkvæmur sjálfum sér í þessari atkvæðagreiðslu. Þessar tillögur Vigdísar Hauksdóttur og svo tillaga Bjarna Ben og Þorgerðar Katrínar er eingöngu til þess að tefja málið.  Einkennilegt að Sjálfstæðisflokkurinn sem hefur verið boðberi frelsis og frjálshyggju, ásamt því að vera flokkur atvinnulífsins skuldi vera andsnúin aðildarviðræðum. Þrátt fyrir að flest hagsmunasamtök atvinnulífsins hafi ályktað að okkur ber að sækja um aðild að ESB. Þingmenn snéru seinni tillögunni upp í að hafa bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu, og saka stjórnina um að vilja ekki þjóðaratkvæðagreiðslu. Málflutningur Sjálfstæðismanna og Framsóknarflokksins er frekar veikur. Eina sem þeir gerður er að reyna að gera aðildarviðræður tortryggilegar. þjóðin mun geta sagt álit sitt á samningum í þjóðaratkvæðagreiðslu að undan gegnum aðildarviðræðum. Eitt er ég sammála að það hefði mátt vanda kannski betur til verka hjá Ríkisstjórninni.


Ný frjálshyggja

Ég var að lesa Grein eftir Sigríði Andersen um frjálshyggjuna. Þar er talað unað ekki hafi skort á reglurnar. Nei kannski má færa rök fyrir því, þá hefur skort á þekkingu og greind stjórnenda landsins á þeim tíma. En Sjálfstæðisflokkurinn hefur stjórnað síðasta áratuginn. Skilningsleysi að leyfa bankastofnunum að verða 10,5 sinnu stærri en hagkerfið. Er glórulaust gjörningur og það skilur hver heilvita maður. Það vita allir að stjórnvöld þurfa alltaf að tryggja banka, þó að þeir séu í einkaeign. Það er í formi innistæðutrygginga ofl laga um starfsemi banka. Það er ekki nóg að segja sko það voru reglur ef enginn sá um að þeim var framfylgt. Sjálfstæðismenn geta ekki hvítþvegið sig af þeirri ábyrgð sem þeir bera á hvernig fór. Þetta er ekki eingöngu vegna alþjóða fjármálakreppu, stjórnvöld síðustu ára sváfu á verðinum.

Frjálshyggja og trú á framtaksemi einstaklingsins er virðingarvert. Kenningar og slagorð er hægt að nota á bæði jákvæðan og neikvæðan hátt. Sú taumlausa einkavæðingarstefna sjálfstæðisflokksins er ekki af hinu góða. (Höfundur skrifa grein árið 1995 um einkavinavæðingu sjálfstæðisfokksins). Sjálfstæðisflokkur ber sína ábyrgð. Sigríður talar um að ekki eigi að tala í frösum, enn það er það sem sjálfstæðisflokkurinn gerir. Í borgarstjórn töluðu sjálfstæðimenn í áratug um sundrung vinstri manna eftir að R listinn varð að veruleika og hélt þeim frá völdum í 12 ár, dofnaði þessi frasi. Nú má segja efir síðustu ár má tala um upplausn hægri manna. Sjálfstæðismenn notuðu orðið stétt með stétt eins lengi og þeir gátu fengið verkamenn til að kjósa sig.

Ég hvet sjálfstæðismenn til þess að koma ekki fram og reyna að hvítþvo flokkinn. Viðurkenn heldur sína ábyrgð í málinu og halda áfram. Það hafa tveir menn innan sjálfstæðisflokksins talað eins og menn þeir Illugi Gunnarsson og Guðlaugur Þór. Kostur þeirra sem stjórnmálamanna umfram aðra í flokknum er að þeir fylgja ekki skoðunum flokksins í blindni. þeir hafa sjálfstæðar skoðanir sem stangast stundum á við skoðanir flokksins. Það er hollt að gagnrýna sinn eigin flokk, þannig þróast hann og verður betri.

 


Hlutverk ríkistjórnarinnar

Þessi ríkistjórn má ekki missa marks á verkefnunum. Það er ekki hlutverk hennar að ákveða hvaða gjaldmiðil við notum næstu árinn. Álversframkvæmdir eru á ís og þessi ríkistjórn á ekki að segja af eða á með það. Hennar hlutverk er að taka á málum sem snúa að viðskiptum, fyrirtækjum og heimilum í landinu. Vinstri grænir mega ekki missa sig og hald að þeirra hlutverk sé að koma öllu í framkvæmd. Ákvörðun um áframhaldandi hvalveiðar sjálfstæðismanna var ólýðræðislega tekinn og var tekinn af ráðherra 5 mínútur fyrir fall stjórnarinnar.  Þessi ríkistjórn verður að vera einbeitt og klára verkefnalista sinn. Nú ríður á að Jóhanna hafa stjórn á sinu fólki. Vinstri grænir verða að gera sér grein fyrir að þetta verður ekki fyrsta og eina skiptið sem þeir verða í ríkistjórn. En ef þeir halda sig ekki við markmiðinn og ætla að koma öllum sínum innri flokksmálum í framkvæmd á 80 dögum þá gæti það orðið veruleikinn. Þjóðin fylgist með aðgerðum þessarar stjórnar og hún mun dæma 25 apríl um það hvort hún vill fá vinstri stjórn eftir kosningar.

 

Munið það þjóðin fylgist með. Það er eingöngu vopnahlé hjá þjóðinni.


Pólitík

Það er merkilegt að hlusta á framsóknarmenn þeir ætluðu að verja ríkistjórnina falli. Nú eru þeir farnir að koma með kröfur á kröfur ofan um það hvernig hlutirnir eiga að vera. Svo kemur Sigmundur Davíð fram sem siðapostuli og segir að hann muni láta þá fá ýtarlegri tillögur. Mér finnst hans framkoma alveg út í hött. En svona hafa framsóknarmenn unnið í gegnum tíðina, vilja ekki axla ábyrgð, en vilja fá vel greitt fyrir hlutina. Mér finnst merkilegt að það skuli 16% ætlar styðja slíkan flokk. Sigmundur er að slá sjálfan sig til riddara á kostnað þjóðarinnar því hver dagur er dýrmætur. Mér finnst þetta alveg út í hött hvernig þeir haga sér.. Svo kalla framsóknarmenn til Jón Daníelsson eins og hann sé þeirra einkaráðgjafi. Ríkistjórnin getur leitað til Jón Daníelssonar sjálf ef henni þykir það þurfa. Ég vil segja við Sigmund, ég get fundið tugi Hagfræðinga sem eru síðan ekki sammála tillögum Jón Daníelsson sama hverjar þær eru. Það eru til margar leiðir að sama markmiðinu. Þetta heitir að setja ofan í við S og VG. Þetta er allt sjónarspil nýs formanns sem, kemur niður á stjórnlausri þjóð. 

 

 HEYR HEYR FYRIR NÝJUM FORMANNI...

 


Framsóknarmennn

Nýr formaður Framsóknar segist styðja minnihlutastjórn VG og S. Hann sagðist ekki setjast í ríkistjórn fyrr en Framsókn hefði endurnýjað umboð sitt. Gott og vel með það, en nú les ég að framsóknarmenn vilja hafa meira um næstu ríkistjórn að segja. Þeir vilja ekki vera með ein vilja fá völdin fyrir ekki neitt. Einkennilegu gjörningur hjá þessum nýja/gamla flokki. Mér finnst nýi formaðurinn koma vel fyrir enda kemur hann úr fjölmiðlum. En flokkurinn hefur ekki gert neitt nýtt. Nema að skipta um formann, hann stendur fyrir sömu gildin. Flokkurinn hefur ekki ekki tekið mið af breyttum aðstæðum. Ætlar hann að vera áfram bændaflokkur og láta okkur greiða meira fyrir landbúnaðarvörur í nafni hafta á innflutningi. En mestu vonbrigði sem ég heyrði var að Guðmundur Steingrímsson hefði gengið í flokkinn.  Enda Guðmundur Skemmtilegur náungi og of góður fyrir Framsóknarflokkinn að mínu mati. En kannski var hann aðeins að synda á móti straumnum í Samfylkingunni. Það hlaut að koma að því að hann færi aftur í fjölskyldufyrirtækið Framsókn.

 

 


Áfram Jóhanna þinn tími er kominn !

Mér líst vel á Jóhönnu að hún taki til í þennan stutta tíma. Bara að hún fái allsherjarvald til framkvæmda. Ég hef trú á að hún geti komið hlutunum á hreyfingu, þó ekki megi búast við kraftaverki. Nú er að sjá hvernig þetta þróast en það stefnir í S og VG stjórn fram að kosningum.Ég er sammála að þó að Geir Haarde sé ágætur kall þá vinnur hann hlutina bara í einum gír, rólegum gír. En það er rétt sem forsetinn sagði enginn forsætisráðherra hefur þurft að glíma við erfiðari aðstæður heldur en hann. Þó ég sé ósammála ýmsu sem hann gerði eins og hvernig hann tók á Bretum. Þá verður að virða það við hanna að þetta var  ekki öfundsvert verk sem hanna hafði.

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband